Umhverfið mitt

Ég bý klárlega í fallegasta sveitarfélagi landsins og er ótrúlega stolt af því. Borgarfjörður og sveitirnar hér í kring er kláralega staðurinn. Hér vil ég búa og ala upp mín börn. Ég hef oft reynt að greina sjálfa mig hvort ég sé þéttbýlis- eða dreifbýlistútta en sú sjálfskoðun hefur yfirleitt leitt til einhvers konar blöndu. Ég elska að komast í sveitina, í bústaðinn og hitta vini mína í dreifbýlinu og svo get ég varla hugsað mér annað en að vinna á vinnustað þar sem ég hitti mikið af fólki og sá vinnustaður er nú í Reykjavík, en get varla hugsað mér að búa á höfuðborgarsvæðinu eða í sveitinni. Frekar erfið... Gæti líklega kallað mig "þétt-dreifbýlistútta" en er samt alls ekkert svo þétt.

Þar sem ég bý nú í fallegasta sveitarfélaginu þá vil ég endilega líka búa í snyrtilegasta sveitarfélaginu og þar er alltaf hægt að gera betur. Hugsa stundum með sjálfri mér hvort það sé hreinlega ekki hægt að færa veginn í gegnum Kleppjárnsreyki svo ferðafólk þurfi ekki að horfa upp á það andleysi sem ríkir þar í snyrtimennskunni. En það þýðir víst ekki að breiða yfir skítinn eða fela hann. Það þarf að kynda rösklega upp í ungmennafélagsandanum og hjálpast að við þetta ekki bara á Kleppjárnsreykjum heldur alls staðar og ég og þú þurfum líka að hugsa um lóðirnar okkar.

Kveðja frá Náttúru-Perlu landsins!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband